Tími: | 24. febrúar 2014 16.00-19.00 |
Kennari: | Dóra Guðmundsdóttir LL.M., aðjúnkt við lagadeild HÍ |
Staðsetning: | Lögberg, stofa 201 |
Nýir dómar EFTA-dómstólsins styrkja virkni EES-reglna í landsrétti og samhliða áhersla dómstólsins á réttaraðgengi og raunhæfa réttarvernd leiðir til stórfelldra breytinga í réttarframkvæmd, sé úrlausnum dómstólsins fylgt.
Í námskeiðinu verður fjallað um þau réttarúrræði sem leiða má af EES-samningnum, umfram skaðabótaskyldu ríkisins og hvað ber að varast í skaðabótamálum sem byggjast á vanefndum ríkisins. Þá verður fjallað um það hvernig beita má meginreglum EES-réttar um raunhæfa réttarvernd, jafngildi og skilvirkni til að ná fram efndum EES-réttinda í landsrétti.