Lagastofnun tekur að sér þjónusturannsóknir og skilar niðurstöðum í formi álitsgerða og skýrslna. Gerður er þjónustusamningur við kaupanda þjónustu og er endurgjald ákveðið eftir samkomulagi.
Verkefni er unnið af sérfræðingi, einum eða fleiri, á vegum Lagastofnunar sem valinn er til starfans eftir eðli verkefnis og sérsviði, í samráði við kaupanda þjónustu.
Til að óska eftir þjónustu Lagastofnunar er unnt að hafa samband við stofnunina gegnum netfangið lagastofnun@hi.is.