Header Paragraph

Hádegismálstofa á vegum Lagastofnunar

Image
Lagastofnun Háskóla Íslands í Lögbergi

Miðvikudaginn 7. september efndi Lagastofnun til hádegismálstofu undir heitinu "Leitin að lokaviðmiðinu. Afhverju gildiskeðjan þarfnast endurskoðunar".

Fyrirlesari var Dr. Hafsteinn Dan Kristjánsson, lektor við Lagadeild Háskóla Íslands.

Fjöldi kenninga í réttarheimspeki lýtur að svokallaðri gildiskeðju lagareglna. Kjarninn í þessum kenningum er sá að allar lagareglur leiði lagagildi sitt á endanum af einhverju æðra viðmiði eða lokaviðmiði sem er við enda gildiskeðjunnar.

Þekktar kenningar af þessum meiði eru t.d. viðurkenningarregla H.L.A. Hart (e. the rule of recognition) og grunnviðmið Hans Kelsen (þ. Grundnorm).

Í erindi Hafsteins Dan var þessi sýn á lögin gagnrýnd og færð rök fyrir því að skýra beri gildi lagareglna og gildiskeðjuna á annan hátt en eldri kenningar hafa gert. Innleggið byggði á erindi sem Hafsteinn Dan hélt áður við Cambridge háskóla.

Image
Leitin að lokaviðmiðinu. Af hverju gildiskeðjan þarfnast endurskoðunar - plakat með mynda af fyrirlesara og Lögberg byggingu HÍ