Rannsóknaraðstoð meistaranema
Auglýst er eftir meistaranemum við Lagadeild Háskóla Íslands í rannsóknaraðstoð á haustmisseri 2024 og vormisseri 2025. Rannsóknaraðstoðin er metin til eininga og gert er ráð fyrir að umfang vinnunnar (hvor staða) nemi 6 ECTS einingum, en vinnuframlag getur verið minna ef umsækjandi óskar eftir því. Reglur um aðstoð meistaranema Lagadeildar HÍ við rannsóknir á vegum Lagastofnunar HÍ (rannsóknaraðstoð) má nálgast hér.
Um er að ræða tvær stöður sem fyrst og fremst eru á sviði opinbers starfsmannaréttar og upplýsingaréttar, en einnig á sviði almenns stjórnsýsluréttar. Aðstoðin felst í gagnaöflun, greiningu og yfirferð á rannsóknarniðurstöðum, og tengist að mestu útgáfu ritraðar á sviði opinbers stjórnsýsluréttar sem er ritstýrt af Trausta Fannari Valssyni dósent og dr. juris Páli Hreinssyni dómara við EFTA dómstólinn. Verkefnin afmarkast nánar í samstarfi við umsjónarmann. Viðfangsefnin falla undir Rannsóknarstofu í stjórnsýslurétti, sem er rannsóknarstofa á vegum Lagastofnunar. Umsjónarmaður rannsóknarvinnunnar er Trausti Fannar Valsson dósent.
Umsóknafrestur rennur út kl. 12.00 fimmtudaginn 19. september. Umsóknum skal beint til Lagastofnunar á netfangið lagastofnun@hi.is. Við mat á umsóknum er m.a. litið til námsárangurs og annarra atriða sem máli geta skipt. Leitast verður við að svara umsóknum eigi síðar en föstudaginn 20. september. Áskilinn er réttur til að hafna öllum umsóknum. Nánari upplýsingar veita Friðrik Árni Friðriksson Hirst framkvæmdastjóri Lagastofnunar (faf@hi.is) og Trausti Fannar Valsson umsjónarmaður rannsóknarverkefnanna (tfv@hi.is).