Málstofa um nauðsyn stjórnarskrárbreytinga vegna mögulegrar aðildar að ESB, 27. maí 2026

Hinn 27. maí 2026 stóð Lagastofnun fyrir hádegismálstofu þar sem fjallað var um álitaefni um nauðsyn stjórnarskrárbreytinga í tengslum við hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu. Framsögumenn voru Arnaldur Hjartarson aðjunkt og Hafsteinn Þór Hauksson dósent, en fundarstjóri var Valgerður Sólnes prófessor og varadeildarforseti Lagadeildar.

Í erindum sínum fjölluðu Arnaldur og Hafsteinn Þór m.a. um það hvaða breytingar þyrfti að gera á stjórnarskránni ef til aðildar að ESB kæmi og hvenær í ferlinu þyrfti þá að gera slíkar breytingar. Jafnframt gerðu þeir grein fyrir niðurstöðum nýlegrar álitsgerðar Lagastofnunar um efnið sem þeir eru höfundar að og unnin var fyrir utanríkismálanefnd Alþingis.

Myndir frá málstofunni fylgja fréttinni. Þá má nálgast fyrrnefnda álitsgerð á vefsíðu Lagastofnunar þar sem finna má nánari umfjöllun um þau álitaefni sem áður var getið.

Share