Rannsóknastofa í refsirétti
Á vegum rannsóknastofu í refsirétti eru stundaðar fræðilegar rannsóknir í refsirétti, með tengslum við afbrotafræði og refsipólitík.
Stjórn rannsóknastofunnar skipa:
- Ragnheiður Bragadóttir, prófessor
- Jónatan Þórmundsson, prófessor emeritus
- Jón Þór Ólason, lektor
Image
- að stunda fræðilegar rannsóknir í refsirétti, bæði almenna hluta refsiréttar og á einstökum brotategundum, viðurlögum og viðurlagapólitík
- að halda áfram að efla samvinnu og samstarf innan Lagadeildar og Lagastofnunar, við aðra háskóla, háskóladeildir og stofnanir, innanlands sem erlendis, sem stunda rannsóknir á sömu fræðasviðum
- að kynna og birta opinberlega, í ræðu og riti, rannsóknaniðurstöður hér á landi og á alþjóðlegum vettvangi
- að styðja við grunnnám og framhaldsnám á sviði refsiréttar
- að efla þátttöku meistara- og doktorsnema í rannsóknum á sviði refsiréttar
- að aðstoða nemendur við að afla rannsóknastyrkja á sviði refsiréttar
- að efla menntun meistara- og doktorsnema, m.a. með fyrirlestrum og þátttöku í norrænum og alþjóðlegum námskeiðum og ráðstefnum