6. Réttarsaga fiskveiða frá landnámi til 1990

 Helgi Áss Grétarsson lögfræðingur fjallar um réttarsögu fiskveiða frá landnámi til 1990.

Í ritinu er upphafi kvótakerfisins lýst og hvernig fiskveiðiréttindi þróuðust. Staðalímyndir kvótakerfisins um úthlutanir fiskveiðiheimilda eru afhjúpaðar og sýnt fram á að þær eiga ekki við rök að styðjast.

Allt frá upphafi hafa margir fengið tækifæri til að öðlast umráð veiðileyfa og kvóta án greiðslu gjalds til þeirra sem fengu réttindunum úthlutað í upphafi.

Niðurstöður gefa til kynna að spurningum um hvort kerfið sé réttlætanlegt og hvort kvóti sé eign hefur verið svarað á ófullnægjandi forsendum.

Ritið er uppselt.